5.5.2007 | 16:00
Golf, golf, golf og aftur golf
Jæja, nú er golfvertíðin formlega hafin. GKG-völlurinn opnaði í dag og þeir sem unnu sjálfboðavinnu í vikunni fengu forskot á sæluna í gær og gátu fyrstir spilað völlinn. Það var skemmtileg upplifun. Völlurinn er í fínu standi, það vantar bara meiri hita og sól svo hann þorni betur. Ég er kominn á það tímaskeið í lífi mínu að mega keppa í öldungaflokki, en að því hef ég stefnt skipulega um nokkurt skeið. Klár markmið hafa verið sett og stífar æfingar framundan. Búinn að leggja gamla golfsettinu og Ping fyrirtækið sér mér fyrir útbúnaði þetta sumarið. Samningar standa nú yfir fyrir næsta tímabil og margir um hituna. Nú er að hefjast handa og láta ekki bara kylfu ráða kasti heldur líka höggi.
Þeir sem vilja hvetja mig og styðja fá pláss hér fyrir neðan og í gestabók. Góð ráð vel þegin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.5.2007 | 17:06
Frábær helgi með íþróttakennurum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.4.2007 | 21:48
Siðlaus ferð forseta alþingis og þingmanna til Kaliforníu
Ég verð að segja það að mér finnst ferð þingmannanna Sólveigar Pétursdóttur, Sigríðar Önnu Þórðardóttur, Hjálmars Árnasonar og Margrétar Frímannsdóttur til Kaliforníu til háborinnar skammar. Við þessu á fólk að bregðast og mótmæla. Það nær engri átt að þingmenn sem nánast hafa látið af störfum skuli bruðla svona með fé almennings. Það er ekkert út á samstarf við aðrar þjóðir að setja, en í þessu tilfelli er greinilega verið að umbuna þingmönnum fyrir störfin á alþingi sem þeir fá greidd laun fyrir að inna af hendi.
Siðleysi Sólveigar og co. er algjört. Svona á ekki að viðgangast. Fjórar milljónir hefðu komið sér vel í matvælakaup hjá Fjölskylduhjálpinni um páskana.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.4.2007 | 23:38
Unaðsleg upplifun
Eitt má segja um hana Týru. Hlýjan frá henni er með eindæmum. Inni í eldhúsi steig ég í eitthvað heitt og mjúkt. Það hefði í sjálfu sér verið í lagi hefði ég veríð í skóm, en svo var ekki. Klístrið smeig á milli tánna og spratt þar upp í gegnum eins og þegar súkkulaðiís er dælt í brauðbox. Alltaf gaman að hitta Begga og Rósu.
Bloggar | Breytt 15.4.2007 kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.4.2007 | 22:33
Ánægjuleg heimsókn
Í kvöld komu Beggi og Rósa í heimsókn með hundinn sinn Týru. Þvílíkt undradýr að mati foreldra. Búið er að útbúa nýja bloggsíðu fyrir Týru undir heitinu Týra Spíra. Vinsældir síðunnar eru geysilegar og í miklu samræmi við væntingar foreldra, en í engu samræmi við hæfileika hundsins að mati þeirra sem best þekkja. Sýnið biðlund við skráningu á síðuna.
.
Bloggar | Breytt 15.4.2007 kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2007 | 13:39
Ánægjulegur stuðningur við Vinstri græn
Það gleður hjarta mitt þegar ég sé hverja könnunina af annarri sýna jákvæðan hug kjósenda til Vinstri grænna. Þegar um 25% landsmanna aðhyllast stefnu þessa flokks þá getur ekki verið um einhvern öfgaflokk til vinstri að ræða eins og oftlega er gefið í skyn. Þetta er flokkur sem hefur með öflugri kynningu á stefnu sinni tekist að valda hugarfarsbreytingu hjá fólki á mörgum sviðum. Auðvitað hafa fleiri komið þar að málum eins og Andri Snær Magnason með bók sinni um Draumalandið og skelegg frammistaða Ómars Ragnarssonar gegn umhversisspjöllum. Stór hluti fólksins í landinu er búinn að átta sig á því að það er vel mögulegt að halda uppi öflugu atvinnulífi á Íslandi án þess að leggja svona mikið undir eins og gert hefur verið og til stendur að gera. Nú þarf að virkja frjóa hugsun í stað vatnsafls og skapa aðstæður til þess að góðar hugmyndir geti orðið að veruleika. Í það má leggja mikið fjármagn.
Auk umhverfisstefnu VG, eru það líklega jafnréttismálin sem hvað mest hafa höfðað til fólks og þá sérstaklega ungs fólks. Það er frábært að fylgjast með þeim aðilum innan Vinstri grænna sem hvað mest hafa tjáð sig um þennan málaflokk. Þekking þeirra á jafnréttis- og kvenfrelsismálum er mikil og útfærsluhugmyndir margar og spennandi. Ef þessi tveir málaflokkar fá að vera í höndum Vinstri grænna í næstu ríkisstjórn á margt eftir að breytast til hins betra í þessu landi.
Það er ekkert óeðlilegt við það að hópur fólks í landinu hafi aðra sýn á hvernig eigi að byggja þetta samfélag, þannig er það hjá flestum þjóðum. Það sem er mikilvægt er að þetta nýja afl í Vinstri grænum fái möguleika á að nýta krafta sína til breytinga á næstu árum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.4.2007 | 14:52
Togstreita hugans
Framundan eru páskar, há annatími skíðamennskunnar á Íslandi. Hér á árum áður var ég á þessum tíma meira og minna á skíðum á hinum og þessum stöðum á landinu. Bæði með og án maka og dætra, oftast án. Nú bregður svo við að ég hef varla stigið á skíði í vetur. Aðstæður hér sunnanlands hafa ekki verið upp á marga fiska og áhuginn hjá mér í samræmi við það. Í dag skoðaði ég samt heimasíður hinna ýmsu skíðasvæða eins og ég geri oft. Ég verð að segja alveg eins og er, Siglufjörður er himnaríki skíðafólks, ég fæ titring í tærnar þegar ég lít yfir svæðið. Hvernig væri að skella sér norður?
Í framhaldinu lít ég inn á golf.is og viti menn, til stendur að opna fleiri golfvelli í nágrenni Reykavíkur um páskana. Aftur fæ ég titring í tærnar. Af hverju ekki að skella sér í golf og byrja tímabilið með stæl? Ég er nú einu sinni að ná því takmarki að hefja keppni í öldungaflokki í sumar og þá á að taka á því. Nú þarf ég aðstoð. Hvert skal stefna? Kannski hvorutveggja, hvorugt eða annað hvort.
Help!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.4.2007 | 17:00
ADHD, ofvirkni, athyglisbrestur og skyldar raskanir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.4.2007 | 21:26
Gífurleg viðbrögð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
31.3.2007 | 23:32
Tímamót Íslandssögunnar
Eins og alþjóð er sjálfsagt upplýst um, hef ég nú látið verða af því að tjá skoðanir mínar opinberlega. Þannig getur þjóðin og heimurinn áttað sig á sjónarmiðum mínum um fjölskyldu mína, þjóðina í heild og það sem henni er fyrir bestu. Jafnframt er möguleiki á að bloggvinir mínir komi með ábendingar um útfærsluatriði hafi ég ekki verið nákvæmur í orðavali hvað skoðanir mínar varðar.
Ég vil byrja á því í minni fyrstu færslu að óska Hafnfirðingum til hamingju með stórsigur gegn stórveldinu Alcan.
Eins og svo margir Hafnfirðingar sé ég nú fyrir mér alþjóðlegan 90 holu golfvölll á besta stað í landi golfklúbbs Keilis. Þar mun (þegar álverið er horfið), væntanlega í famtíðinni rísa einn besti og stærsti golfvöllur heims sem vonandi mengar mun minna en álverið, en skilar mun meiri hagnaði ef rétt verður á málum haldið. Hverjir verða í næstu stjórn Keilis?
Bloggar | Breytt 4.4.2007 kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)