14.4.2007 | 23:38
Unaðsleg upplifun
Eitt má segja um hana Týru. Hlýjan frá henni er með eindæmum. Inni í eldhúsi steig ég í eitthvað heitt og mjúkt. Það hefði í sjálfu sér verið í lagi hefði ég veríð í skóm, en svo var ekki. Klístrið smeig á milli tánna og spratt þar upp í gegnum eins og þegar súkkulaðiís er dælt í brauðbox. Alltaf gaman að hitta Begga og Rósu.
Bloggar | Breytt 15.4.2007 kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.4.2007 | 22:33
Ánægjuleg heimsókn
Í kvöld komu Beggi og Rósa í heimsókn með hundinn sinn Týru. Þvílíkt undradýr að mati foreldra. Búið er að útbúa nýja bloggsíðu fyrir Týru undir heitinu Týra Spíra. Vinsældir síðunnar eru geysilegar og í miklu samræmi við væntingar foreldra, en í engu samræmi við hæfileika hundsins að mati þeirra sem best þekkja. Sýnið biðlund við skráningu á síðuna.
.
Bloggar | Breytt 15.4.2007 kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)